VídeóUSA Farar

Jæja þá er kominn síða fyrir vídeó og er hún aðgengileg hér til hliðar undir nokkur vídeó.
Einnig er hægt að smella á tenglanna í þessari grein.
Enn er bara eitt vídeó komið inn en fleiri eru á leiðinni. Þetta eina er snilld með Gumma að fræða okkur um hvers vegna okkur var hent út af barnum í Denver. ENJOY
HANSI

Fleiri myndirUSA Farar

Jæja þá er enn ein myndauppfærslan kominn og á þetta að covera LA og alveg til heimferðar frá San Francisco. Enn er þó hellingur af myndum sem eiga eftir að komast inn og þær koma á næstunni en þessar 230 sem ég set inn núna eiga að duga eitthvað. Annars eru myndirnar hér



Hér er Gummi með sætu þjónustustúlkunni okkar frá Hooters í San Diego.

Ég hugsa að við þurfum að fara að halda myndakvöld þar sem ferðin er útskýrð fyrir ykkur sem ekki tókuð þátt í henni en hafið áhuga á að fræðast meira um hvað er að gerast á myndunum. Endilega commentið ef að þið hafið áhuga á því. Annars get ég komið og haft einkasýningu með dansi og öllu ef áhugi er fyrir því.
HANSI

MyndirUSA Farar

Komin smá myndauppfærsla
Utah til fyrsta dags í LA
Meira á næstu dögum

Við erum komin heim!USA Farar

Svona smá frá mér um þessa síðustu daga...

Eins og Þorleifur segir frá, þá er LA ekkert spennandi borg, en það var gaman fyrir mig að hitta fjölskylduna þar.

Reyndar var mjög gaman að fara á Rockstar og hitta Magna.
Það var einhver kynnir í hléi sem bað einhvern af okkur Íslendingunum að koma upp á svið, og þar sem ég er svo "hógvær og lítillátur", þá hljóp ég með risafánann okkar um salinn og upp á svið og þá kom Magni upp að mér og faðmaði mig og sagði hversu gott væri loksins að fá að heyra íslensku. Við spjölluðum þarna í smá stund og svo gaf ég honum Bros bola fánann okkar og hann var ekkert smá ánægður með það kallinn Hlæjandi

Fjórhjólaferðin í San Diego var algjör snilld og mundi ég mæla með þessu fyrir hvern sem er!!!
Fyrirtækið sem leigir út hjólin náði í okkur til San Diego og keyrði okkur til Mexico.
Við fórum framhjá Tijuana og til Rosarita. Þar voru sandhólar sem við fengum að leika okkur í um morguninn. Síðan fengum við okkur hádegismat á einhverri lítilli mexíkanskri búllu. Maturinn þar var geggjað góður, en það var sennilega hann sem olli því að við urðum fyrir óþægindum í meltingarvegi Glottandi.
Þetta var allavega þannig veitingastaður að ef maður hefði keyrt þarna framhjá, þá hefði maður aldrei stoppað þarna til að fá sér að borða. En þar sem leiðsögumenn okkar mæltu með þessum stað, þá fórum við þangað með þeim.
Eftir matinn, þá fórum við slóða og keyrðum hann mjög hratt. Leiðsögumennirnir sögðu að venjulega færu þeir ekki svona hratt yfir þessa leið. Þetta var mjög flott leið og gaman að geta fengið að sjá smá af náttúru Mexico og nokkra sveitabæi í leiðinni.
Hansi náði samt að steikja hjólið sitt á miðri leið og þurfti að stoppa túrinn í smá tíma til að ná í nýtt hjól.
Bilað skemmtileg hjólaferð!!!

Eftir San Diego var farið til San Bernantino (minnir mig að það heitir), og fórum við þar í stærstu motorcross búð í heimi. Þar töpuðu menn sér, þó mismikið.
Síðan var farið til San Francisco. Frisco var ein flottasta borgin sem ég sá á leiðinni í þessu ferðalagi og var mjög notalegt að vera þar.
Þar sem þetta var síðasti áfangastaðurinn var mikið verslað þar. Einnig var farið á Fischermans warf og keyrt yfir Golden Gate brúna.

Þessi mánaðarferð var alveg frábær og finnst mér að ég hafi upplifað alveg helling á þessu ferðalagi.
Þetta er eiginlega ólýsanleg lífsreynsla, en við erum búin að skrifa svona það helsta hér niður sem við höfum lent í síðastliðinn mánuð.


-- Heimir

Smá blogg þar sem enginn nennir að skrifa neitt!!USA Farar

LA er ömurleg borg.  Það eru allir með mismunandi skoðanir á hvernig hún er leiðinleg, en hún er það samt.  Langt að keyra o.s.fv. og þessi helv hitabylgja.
Við fórum annars að kíkja á Magna og Supernova þarna á miðvikudaginn.  Sátum í VIP stúku sem þýddi að við sáumst ekkert í sjónvarpinu.  Fengum samt tækifæri til að fara upp á svið og kynna land og þjóð sem Heimir tók að sér og stóð sig með prýði.  Magni kom upp á svið til hans og fékk fánann fræga sem Bros-Bolir gáfu okkur, bara til að hafa smá bita af Íslandi með sér heim.  Eftir showið þá hittum við Magna aðeins og spjölluðum.
Auðvitað var kíkt á Universal Studios og á þessa helstu túrhesta staði.  En annars var bara slappað af í LA og notið lífsins með roomservice í annarri og Mall-guide í hinni, kíktum á Pirates og borðuðum á Sizzlers.  Það var ruglað heitt enda hitamet brotið í LA á hverjum degi.

San Diego var næsta borg og við sáum mikið eftir að hafa ekki verið þar í staðin fyrir LA.  Þar er svona miðbær og smá djamm-líf.  En annars voru krakkarnir, utan mig og Karólínu og Birnu, að fara í Motorhjóla og fjórhjólaferð.  Þau skemmtu sér vel og borðuðu vel líka.  Það vel að allir utan Hemma fengu "matareitrun" og fyrstu dagana í San Fran voru nokkur klósett eyðilögð, en þökk sé frjálsri lyfjasölu þá var ekkert mál fyrir okkur Hemma að redda and-niðurgangstöflum fyrir alla.

Annars er San Fran geggjuð borg og kööööld.  Loksins getur maður gengið um í gallabuxum eins og maður, í stað þessa að við allir strákarnir erum í felulitastuttbuxum.  Næturnar eru svalar og það er smá gola.  Fínt eftir þessa forking hitabylgju sem hefur verið hérna. 

Fyrir tækjanörda og annað fólk þá ber líka að segja frá því að við Hansi kíktum á Meyer-Sound.  Og fengum að skoða kvikmyndahúsið hans John Meyer í leiðinni, og svo fórum við að horfa á bíómynd með John Meyer... Hann er NÖRD.  Meira af Meyer-Sound á toby.go.is þegar ég kem heim.  Þetta var geggjuð ferð.


                   -Toby-

LA !USA Farar

Við erum í LA!!!

Við komum til LA um 18 leytið 21. júlí. Fyrsta stopp var hjá Lindu frænku minni hér í LA og fengum við öll að gista hjá henni í eina nótt.
Hún og maðurinn hennar, Raul, tóku frábærlega á móti okkur og buðu okkur í mat og svo drykki með til að skola matnum niður... fram eftir kvöldi Hlæjandi

Það var geggjað gaman fyrir mig að fá að hitta fjölskylduna mína hérna úti og svo líka "my long lost sister"!! Ég á semsagt systur hér í LA sem ég hef aldrei hitt fyrr (nema þegar hún sá mig nýfæddan Hissa). Það var alveg ótrúleg upplifun að fá að hitta hana. Ég ætla svo að heimsækja hana meðan við erum hér í LA.
Ég fékk einnig að hitta litla nýfædda frænda minn sem Carlotta dóttir Lindu eignaðist 13. júlí síðastliðinn. Hann er sko geggjaður töffari!!

Well nenni ekki meiru... meira seinna.


-- Heimir

Okkar útgáfa af seinustu dögum...OMISON!!USA Farar

Hópurinn tvístraðist í Denver þar sem liðin í hinum bílunum fóru í vibba bústað og við hin ákváðum að drífa okkur til Sin City. Keyrt var í gegnum Rocky mountains, Aspen og bæarins Rifle, þar sem við fengum okkur göngutúr í Rifle Falls og skoðuðum hella og fossa og munaði engu að við hefðum verið étin af fjallaljóni. Eftir það lá leiðin að vatni sem hefði hefði verið æði ef það hefði ekki verið ógeð. Þannig við ákváðum að baða okkur ekki í því. Seinna þennan dag komum við til Moab þar sem við grilluðum dýrindis mat og í eftirmat voru sykurpúðar en því miður dó grillið frekar snemma og því var hugvitið notað og bál var kveikt með spreki og laufum. Eins gott að enginn hringdi á lögguna!!!

Daginn eftir beið okkur langur akstur alla leið til Vegas. Á leiðinni sáum við þetta flotta berg sem að hinir keyrðu alla leið til Bryce til að sjá ásamt mörgum öðrum augnaryndum og hitinn... shit maður hefði allt eins getað gengið á sólinni! Ekki að undra líka að skógareldar voru sitt hvorum megin við okkur í smá stund. Bæði sáum þá og fundum brunalyktina. Það var magnað.
Þegar til Vegas var komið tjekkuðum við okkur inn á stæðsta hótelið sem maður á æfinni hefur séð...fyrir utan hótelið við hliðiná og öll í kring...Fyrst við vorum komin til Vegas ákváðum við að gera þetta með stæl og fengum okkur svítur með geggjuðu útsýni og tilheyrandi á 21 hæð.
Á leiðinni á steikhúsið um kvöldið þar sem við borðuðum sáum við geggjaðar þrumur og eldingar eins og maður hefur aldrei upplifað áður. Þegar á steikhúsið var komið horfðum við á eftir leigubílnum fara þegar við við áttuðum okur á því að steikhúsið hafði verið lokað 2 mínútum áður og á sömu stundu kom rigning eins og hellt væri úr fötu. Okkur til "lukku" var enn starfsmaður inni á staðnum sem hringdi á leigubíl fyrir okkur. Þegar leigubílstjórinn loksins kom á staðinn "ákvað" hann að bakka á bílinn hjá konunni sem var að fara úr bílastæðinu. Lukkan í ólukkunni var sem betur fer að konan  nennti ekki að standa í þessu bílslysaveseni. Jáááá...við ákváum að borða bara á hótelinu.

Daginn eftir fórum við í Moll til að versla (ójá) og seinnipartinn fóru Karólína, Heimir og Stefán í þyrluferð um Hooverdam og flugum inn í Grand Canyon. Djöfull var það geggjuð upplifun. Allt var tekið upp á Video. Um kvöldið voru hin komin og nokkrir ónefndir voru duglegir í að vinna og tapa peningum og sumir meira en aðrir en við dömurnar tvær vorum aðallega í því að drekka kokteila og sáum engann tilgang í því að gefa Casinoinu monningana okkar...vildum frekar eyða þeim í skópörin sem við keyptum í dag úúúúúúúúú......sama og gefins skiluru.Svalur

þetta er orðin helvíti löng færsla og erum orðnar frekar fullar þannnig BÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆ

Frh í next episode

Kv. Börní und Körnílíus

     
Flotta ógeðslega vatnið                     Sykurpúðar grillaðir á opnum eldi

        
Sætu Polobolirnir                    Að máta hárkollur...töff

45° allan tímannUSA Farar

Jæja þá er mar loksins kominn í nettengingu og hefur tíma til að blogga. Síðast vorum við nýkomin til Moab og þar mun ég byrja að segja frá. Um kvöldið þegar við komum til Moab datt Hemma í hug að draga okkur í göngutúr, rétt fyrir myrkur, upp í gil þar sem á að vera náttúruleg brú. Landvörður var búinn að segja honum að það myndi taka 2 tíma hvora leið að labba þetta en Hemmi hugsaði “ahh við gerum þetta á 45 mín og komum til baka í björtu”. Við löbbuðum náttúrulega af stað og treystum þaulreyndum Hemmanum en þegar við vorum komin nokkuð áleiðis ákváðum við að snúa við þar sem að við sáum ekki neitt, enda var skollið á þetta brjálaða myrkur, sem þó var búið á spá að myndi gerast. Svo þurftum við að notast við alla ljósgjafa sem við höfðum til að rata til baka og þar komum gemmsarnir vel að notum. Aldrei að hlusta á Hemma.


Daginn eftir splittaðist hópurinn og hluti hélt beint til Vegas en við hin (Hansi, Toby, Hemmi, Ása, Gummi og Guðjón) fórum og skoðuðum Bryce Canyon National Park og hann var algjör snilld eins og myndirnar þaðan gefa til kynna. Bryce er í 9000 feta hæð og Hansi fékk þá “snilldar” hugmynd um að rölta niður í eitt gilið og skoða það nánar. Hansa datt samt ekki í hug að í þessari hæð er minna um súrefni og það að labba aftur upp var ákaflega þreytandi en þetta var samt eiginlega alveg þess virði.

Eftir Bryce fórum við áleiðis til Grand Canyon og gistum ekki langt frá því.


Þann 18 Júlí vöknuðum við snemma og skruppum til Grand Canyon North Rim og það er rosalega flottur staður og myndirnar segja sitt og lítið meira hægt að segja um það. Eftir Grand Canyon lögðum við af stað til Las Vegas og vorum komin þangað um kl 17.


Las Vegas er náttúrulega snilld og alveg stórskrítin borg. Þetta er bara ein gata sem allt snýst um og við hana standa merkilegustu hótelin og hótelið okkar, Hilton Flamingo, er einmitt staðsett á miðri þessari götu og því stutt frá öllu. Þegar við löbbuðum inn á hótelið þá misstum við andlitið yfir því hvað þetta var allt stórt og flott. Við komum okkur fyrir og svo splittuðumst við upp og fengum okkur að borða og skoðuðum hótelið eða amk hluta af því og svo var farið að spila. Flestir töpuðu en sumir voru að græða og þar á meðal undirritaður sem réðst strax á 2$-4$ limit Texas hold-em og sat þar ákaflega lengi eða þangað til hann gat ekki meira vegna þess að þjónustustúlkunar voru ákaflega duglegar að bera í spilaranna áfengi. Eftir það hittust flestir við Rúllettuborð þar sem Gummi var að reyna að gera spilavítið gjaldþrota og var að vinna á tá og fingri og það þarf eiginlega að fara að setja inn öll vídeóin þar sem Gummi er að brillera. Ég tók mig til að settist við rúllettuborðið og græddi um 200 dollara og þá var farið að sofa.

Daginn eftir var vaknað snemma miðað við áfengismagnið sem var drukkið kvöldið áður og enn splittaðist hópurinn upp og Ég, Toby, Ása og Hemmi fórum í verslunarmiðstöð sem heitir Fashion Show og er risastór og flott með skemmtilegum búðum. Svo var ákveðið að skoða eitthvað show og þá varð galdrasýning með Penn og Teller fyrir valinu og alveg var það rosaleg snilld. Svo var haldið áfram að spila og ég sat í 4 tíma í Texas hold-em og svo fór ég í rúllettu og græddi meira.

Síðasta daginn var legið við sundlaugina og reynt að ná sér í smá lit enda var svo heitt að það var lítið annað hægt að gera. Þegar lyktin af brenndu beikoni var orðin of megn skruppu flesti í búð sem heitir The Gun Store en þar er hægt að fá að skjóta af alskonar byssum og við prófuðum Sigsauer 229, Glock 17 og M16 og þar var bara gaman. Um kvöldið fóru sumir á StarTrek sýningu og aðrir gerðu minna en ég og Toby skruppum á alvöru Vegas show með fjöðrum og helling af dönsurum og showgirls og öllu sem því fylgir og ég mæli allsvakalega með en það heitir Jubilee og er á Bally's hótelinu. Svo var haldið áfram að spila og mér gekk ekkert of vel núna og tapaði soldið en Ása tók sig á og rakaði inn peningum í lukkuhjóli. Ég var örðinn soldið drukkinn og ákvað að fá mér göngutúr til að leita að strippbúllu en það gekk ekki eins vel og ég bjóst við og eftir að hafa labbað um 5 mílur þá ákvað ég að nú væri komið nóg og tók leigubíl út á hótel og fór að sofa.

Ég var ekkert rosalega hress daginn eftir og rétt hafði mig í það að pakka áður en lokatíminn fyrir check-out kæmi. Svo kíktum við í frábært morgunverðarhlaðborð og svo var lagt af stað til Los Angeles en þó ekki fyrr enn mér tókst að græða 100 dollara í rúllettu. Við komum til LA kl 18 í gærkvöldi eftir hundleiðinlega og þreytta keyrslu um eyðimörkina. Við gistum í nótt hjá frænku Heimis og það var rosalega þægilegt. Þar var drukkið og skemmt sér og Heimir hitti hálfsystur sína í fyrsta skipti síðan hann fæddist. Þetta var stuð og brjáluðu Mexikóarnir sem voru þarna blönduðu fullt af tequiladrykkjum og notuðu náttúrulega of mikið tequila alltaf og við urðum flest ákaflega drukkin. Flestum var soldið mikið heitt í nótt nema mér og Guðjóni enda sváfum við úti á svölum.

Í morgun var hausverkur að drepa fólk og var því borðaður rosalega góður morgunmatur og svo stokkið í laugina til að kæla sig þar sem að það er alveg kæfandi hiti hérna. Núna erum við komin á hótelið okkar sem heitir Pacific Palms Resort og það er algjör snilld með 2 golfvelli og 15 tennisvelli og er alveg ótrúlega flott og okkur fannst við ekki alveg eiga heima þarna en þetta er snilld það er bara soldið of heitt hérna.


Myndir detta inn bráðlega, Magnið er bara svo mikið að það er erfitt að komast í genum þær allar.


Ámorgun förum við að sjá upptöku á Rockstar Supernova og hlakkar okkur alveg rosalega til að sjá þetta sem við erum búin að fylgjast með síðan í Washington DC.


Við erum búin að keyra 4000 mílur í ferðinni eða um 6400 km og er orðið soldið þreytandi að vera að keyra svona mikið en þetta er þess virði. Reynum að blogga oftar núna og segja frá því sem að gerist í LA og sérstaklega hvernig Rockstar er á morgun.


Biðjum að heilsa öllum

kveðja

Hansi

Hent út af bar í Denver!USA Farar

Og allt Gumma að kenna ;)

EEEEn áður en farið verður í þá sögu þá er smá að segja frá Denver.

Ég dömpaði ferðafélögununum í einn dag eftir að komum til Denver. Orri vinur minn býr nefnilega þarna á svæðinu og ég ákvað að gista hjá honum eina nótt. Sóley, konan hans, sótti mig til Denver því Orri var á námskeiði. Því var haldið til Fort Collins og komið við og keypt á grillið. Orri hitti okkur þar og við grilluðum. Svo fórum við á alvöru kábboja-stað en hann var að loka svo við fórum á annan bar og drukkum fram eftir kvöldi. Fékk að sofa út daginn eftir. Svo fórum við Orri og hjóluðum í bruggverksmiðju rétt hjá og brögðuðum nokkra og kíktum í smá túr um bruggverksmiðjuna. Orri gaf mér í afmælisgjöf miða á uppistandararann Bob Saget (americas funniest home videos gaurinn) og hansi kíkti með. Við ss brunuðum til Denver við Orri, með frábæra afmælisköku sem Sóley bakaði fyrir mig og ferðafélagana. Henni var rennt niður með góðri lyst af ferðahópnum. Svo voru það nokkrir bjórar og við hansi og orri kíktum á Bob. Djöfull er þessi maður fyndinn. Gerð lítið annað en að gera grín af sjálfum sér og svona helvíti vel. Í AFHV er hann þessi "góði" gaur en er hinn mesti sorakjaftur á sviðinu.
Eftir Bob hittum við Hemma, Ásu, Guðjón og Gumma og kíktum á bar. Það eru fáránlegar reglur varðandi opnunartíma en allt lokar kl 2... KLUKKAN TVÖ. Og Bob var ekki búinn fyrr en um miðnætti. Við fundum fínan bar þarna. Bærinn leit svolítið út eins og Reykjavík um kl sex. Það voru allir fullir og vel það. Stympingar og löggur út um allt. Voru víst einhverja skotárásir nokkrum vikum áður og löggæslan hert til muna.
Þegar á barinn var komið keyptu allir sér drykk. Nema Gummi, honum var boðið bjór og bauð auðvitað til baka eins og sönnum íslending sæmir. Nema hvað hann keypti frekar marga drykki, enda þurfti að bæta upp að það var opið svo stutt, og þeir enduðu í allavegana 3 skotum, vodka GLAS og eitthvað fleira, á 12 mínutum. Og Gummi varð smá fullur samt ekkert svakalega. Nokkru seinna fór hann aftur á barinn ( um 15 mín seinna) og ákvað að segja hátt hvað hann vildi drekka að barþjóninum, sem benti dyravörðum á að henda honum út. Í smá stund slapp hann en svo kom dyravarðagaur og ákvað að henda honum út og við máttum fylgja. Þannig að djammið var búið bara kl 01:15 um kvöldið. En við áttum bjór upp á hóteli og Við Orri, Guðjón og Hansi vorum að til um fjögur. Gummi settist á rúmið sitt við heimkomu og dó áður en hausinn lenti á koddanum.

Svo byrjaði nýr dagur á þynnku og svakalega vondum morgunmat. Liðið úr rauða bílnum kom ekki með á djammið og fór í mall snemma. Við hin fórum í töskuverslunarleiðangur og útivistarbúnaðarleiðangur þar sem við hittumst öll. Svo var haldið úr bænum, en fyrst droppað Orra aftur í bílinn sinn, og stefnan tekin á Twin Lakes þar sem beið okkar skáli. Á þessarri leið tókum við Hansi okkur til og fórum í útsýnisbíltúr upp í 11.990 feta hæð, sem er um 3600 metrar.
Twin Lakes var líka fínt. Við fengum grill og grilluðum geggjað kjöt. Reyndar var húsnæðið smá vafasamt en ekkert sem maður hefur ekki séð áður. Svo var drukkið bjór úti á verönd fram eftir kvöldi og þeir voru ófáir kláraðir. En samt náðum við að vakna kl 7 í morgun og borða staðgóðan morgunmat og fara svo að veiða með veiðistöngum sem Gummi, Hemmi og Hansi fjárfestu í. Við fengum nokkra sem nörtuðu og þeir voru allir 30 pund og stærri og Hansi náði næstum að landa einum í fyrsta kasti en spúnninn brotnaði ;) (wellcome hunters, fishermen and other liars) ;)

Í bíltúrnum í dag, niður í Moab þar sem við erum núna, fórum við upp í 12.095 feta hæð hæst. Að keyra í gegnum klettafjöllin er svo geðveikt. Þetta er svo stórt og fallegt að það er ótrúlegt. Myndir munu fylgja innan skamms. Svo keyrðum við í gili meðfram Colorado River líka og það er líka stórfenglegt. Moab er þekkt fyrir það að flestir vestrarnir á sjötta og sjöunda áratugnum voru skotnir á svæðinu hérna í kring. Nú hýsir þetta helstu keppnir í klettaklifri á jeppum og allskonar mótorhjóla og fjórhjóla activities.
Það var allt að 110°F í dag svo við skelltum okkur bara beint í laugina þegar við komum á hótelið, og bíðum nú eftir að það kólni aðeins svo við getum farið að gera eitthvað. Og Hansi er mikið brunninn ;)

Morgun verður svo farið í svona þjóðgarð og rölt aðeins um svæði sem á víst að vera eitt það fallegra í heiminum. Þjóðgarðurinn Bryce í Utah.

Þakka allar afmæliskveðjurnar líka :)



-Toby-

CHICKEN!USA Farar

Jæja nú fáiði blogg frá okkur skemmtilega fólkinu. LOKSINS! HihiGráðugur.

Erum í augnablikunu í Glenwood Spring á kósí móteli á meðan hin sex eru víst í einhverjum hrækofa. Keyrðum í gegnum Aspen og má segja að maður þyrfti að hafa ansi margar milljómir milli handanna til þess að geta dvalið þar, þar sem þar voru einkaflugvélar í tugatali og læti..

Höfum fundið bestu fatabúð í veröldinni og eigum eflaust eftir að fylla fataskápana okkar bara af því fatamerki þegar heim er komið.

Í gær fórum við í skemmtigarð, mjög gaman! Við fórum í klikkað skemmtileg tæki og einnig í tæki sem var kallað súpermann af því að maður lá í því, en maður var frekar laus í því og manni fannst alltaf maður vera að rekast í eitthvað og skíturinn var ekki langt undan, ég sá eftir því að hafa farið í tækið allan tímann! æði.... Svo fórum við í sund í háfjllasól og með sólarvörn 30, grillaður lifandi, oj.. gaman..hihi.

Við ráðleggjum lesendum að lesa texta að neðanverðu með hvíslandi röddu.

Við minnumst ekki ógrátandi hinni skelfilegu lifsreynslu sem henti okkur um daginn. Það var brakandi sól og svitinn lak niður bakið af hræðslu og hita þegar bláu og rauðu ljósin blikkuðu í baksýnisspeglinum. Bílstjórinn lagði bílnum við kantinn, og við heyrðum þung fótstig nálgast. Þetta var hinn ógurlega ameríski lögreglumaður með byssu við mjöðm. Um stund héldum við að þetta væri okkar seinasta augnablik og við sáum lífið þjóta fyrir augum okkar. Með djúpri og agaðri rödd heyrðum við lögreglumanninn segja "license and registration Sir". Maginn snerist í hringi um stund og það var eins og tíminn stæði í stað. Við höfðum keyrt of hratt! Hafði það atvikast vegna þess að við vorum síðust í bílaröðinni. Lögreglumaðurinn tók niður nafn og heimilisfang bilstjórans og hvarf um stund inn í myrkan lögreglubílinn. Margar hugsanir fóru í gegnum huga okkar, hve há yrði sektin? Allar mögulegar tilfinningar gerðu um sig í einu en áður en við vissum af birtist hann á ný. Við fengum viðvörun. Við lærðum okkar lexíu! Annað en margir aðrir.

Framhald í næsta þætti

Kv. Birna og Karólína


Könnun

Hver vinnur rockstar??

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Gagnasafn